Perlukafarinn ehf var stofnaður í lok ágúst 2006 og opnaði dyrnar að skartgripavörubúð að Holtasmára 1 nokkrum dögum síðar, eða 16. september 2006. Verslunin flutti árið 2009 í Glæsibæ í Reykjavík og opnaði þar 8. júní.
Síðan 2006 hefur Perlukafarinn, undir stjórn Christinu van Deventer skartgripasérfræðings, verið leiðandi í kennslu skartgripagerðar og sölu á hverskyns vörum til skartgripagerðar.
Perlukafarinn leggur áherslu á hágæða vörur á góðu verði. Í versluninni eru að jafnaði mörg hundruð mismunandi tegundir af perlum og menum úr gleri, Swarovski kristal, ferskvatnsperlum, beini, tré, náttúrulegum stein og svo mætti lengi telja. Einnig seljum við verkfæri, víra, keðjur, silkiþræði og flestallt annað sem hugur skartgripahönnuðarins girnist.
Perlukafarinn hefur frá upphafi lagt áherslu á að landsbyggðin líði ekki fyrir að komast ekki í verslunina og því sendum við skartgripavörur frítt út á land og höldum öðru hvoru skartgripagerðarnámskeið úti á landi.