Excalibur logo

Hvað segir Solla "græna" um Excalibur?"

"Fyrir um 12 árum fór ég í fyrsta skipti út til Puerto Rico til að læra um hráfæði.

Það var alveg stórkostleg upplifun. Þarna lærði ég að matreiða eftir öllum "hrá" kúnstarinnar reglum. Það sem vakti athygli mína m.a. var að við fengum ótrúlega góð hrökkkex, smákökur & tortillur.
Ég spurði yfirmatseljuna í eldhúsinu hvort þetta ætti ekki eingöngu að vera hráfæði?
Jú svaraði hún, & sýndi mér stoltið sitt, Excalibur þurrkofn. Hún sagði mér að þessi ofn væri ástæðan fyrir því að hún gæti verið á hráfæði. Þarna galdraði hún fram allskyns kræsingar & nýtti upp afganga.

Þennan ofn er hægt að stilla frá 0-68°C. Í hráfæðinu er hægt að setja ýmislegt í ofninn við 47°C & fá ýmislegt gómsætt & girnilegt, án þess að ensímin eyðileggist. Hægt er að hita súpur & ýmsa rétti í ofninum ásamt því að "baka" & matreiða.
Ég hef verið á nokkrum hráfæðiskólum úti í heimi & allir nota þeir Excalibur & vara við lélegum eftirlíkingum. Í dag á ég 4 ofna, 2 sem eru með 9 hillum, einn lítinn ferðaofn með 4 hillum & sá nýjasti er 5 hillu með tímastilli.
Ég held að þessir ofnar gera það m.a. að verkum að fjölskyldan mín er ótrúlega jákvæð gagnvart hráfæðinu.
Möguleikarnir eru óendanlegir & lífið í eldhúsinu miklu skemmtilegra.

Kær kveðja,
Solla."