Forsíða
Um Perlukafarann
Nýjar vörur
Vörur til skartgripagerðar
Kumihimo
Föndurvörur
Gjafagallerí
Námskeið
Leiðbeiningar
Þurrkofnar
Hvar erum við?
Opnunartímar

Kumihimo vefnaður

 

Kumihimo er nýjasta æðið erlendis. Nú er Kumihimo komið í Perlukafarann!

Kumihimo er gömul japönsk fléttitækni. Með aðstoð KumiLoom fléttidisksins er auðvelt að tileinka sér Kumihimo fléttunina. Sjáðu hvernig diskurinn virkar!

Sýnishorn

Christina hefur útbúið nokkur sýnishorn - eftirfarandi er allt tiltölulega einfalt að gera með KumiLoom græjunni - líka fyrir börnin! Öll sýnishornin hér að neðan er hægt að sjá í eigin persónu í versluninni í Glæsibæ.


Hægt er að búa til hálsmen sem eru einþráða og víkka svo út í margþráða hálsmen - án þess að nota nokkur tengistykki.

Hér eru perlur af þremur mismunandi stærðum notaðar saman í eina fléttu.

Menið var það fyrsta sem fór upp á þráðinn. Svo var það fléttað fast.

Þú getur búið til mjög glæsileg hálsmen án þess að nota nokkrar perlur. Með því að nota mismunandi tegundir þráða er hægt að ná fram algjörlega mismunandi effektum (sjá t.d. eldrauða hálsmenið hér fyrir neðan).

Nærmynd af samskeytunum á fyrsta hálsmeninu.

Nærmynd af samskeytunum á fyrsta hálsmeninu.

Hér höfum við sameinað silkiþráð og borða til að fá algjörlega öðruvísi áferð.

Nærmynd af þessari skemmtilegu grófu fléttu.

Þetta lítur út fyrir að vera mun flóknara en það er. Í upphafi leit allt menið út eins og miðjan en við toguðum þráðinn í sundur á hliðunum þegar menið var fullfléttað.

Sýnishornin hér að ofan sýna einungis örlítið brot af því sem hægt er að gera með KumiLoom disknum.

Hvaða vörur eru í boði fyrir Kumihimo?


KumiLoom diskur - kr. 2.990,-


Kumihimo byrjendasett - kr. 4.490,-

Byrjendasettið inniheldur:
1 KumiLoom disk
8 snældur
Leiðbeiningabækling (12 blaðsíður)
8 æfingaþræði


Kumihimo "Big Project" sett - kr. 9.990,-

Big Project Settið inniheldur:
1 KumiLoom disk
Bókina "The Complete Guide to Kumihimo on a Braiding Loom" (88 blaðsíður)
16 snældur
Þráð sem nægir í tvö heil hálsmen
Tvö sett af lásum
Nymo þráð til að ganga frá endum
"Super Glue" límtúbu
æfingaþráð


Kumihimo litlar snældur - kr. 290,-


Kumihimo stórar snældur - kr. 390,-


Kumihimo eitt lásasett (hefðbundið / segul) - kr, 790,-.

Hvernig virkar KumiLoom diskurinn?

Myndbandið hér fyrir ofan útskýrir grunntæknina á bakvið KumiLoom.

Myndbandið hér fyrir ofan sýnir hvernig hægt er að bæta perlum við fléttunina.