Excalibur þurrkofnar
Excalibur þurrkofna þekkja allir sem eitthvað vita um hráfæði - ef maður tekur hráfæði alvarlega á maður allavega einn Excalibur þurrkofn - svo einfalt er það!
En ofnana er hægt að nota í ýmislegt annað en bara hráfæði - þeir nýtast ákaflega vel í alla mögulega þurrkun, hvort sem þú ert að þurrka sveppi eða grænmeti, búa til ávaxtaleður eða hundanammi, eða jafnvel að þurrka skyr!
Paralexx kerfið
Viftan, hitaelementið og hitastillirinn eru aftast í ofninum. Ofninn tekur inn loft að aftan, hitar það upp og dreifir því jafnt yfir alla bakkana. Á meðan þurrkuninni stendur dregur heita loftið rakann úr matnum og er svo tæmt út um framhliðina á ofninum.

