Perlukafarinn býður upp á frábær námskeið í almennri skartgripagerð. Kennt er á laugardögum kl. 11:00 (námskeiðið tekur fjórar klukkustundir). Forskráning er nauðsynleg og lágmarksfjöldi í einu námskeiði eru 4 og hámarksfjöldi 8. Ef heill hópur vill fá námskeið saman er hægt að velja aðra tíma eftir samkomulagi. Einnig komum við út á land og kennum ef ákveðinn fjöldi þátttakenda er skráður fyrirfram.
Skráning fer fram í síma 534-0255, í tölvupóstfanginu perlukafarinn(hjá)perlukafarinn.is og í Glæsibæ á opnunartíma verslunarinnar.
Sjá nánari lýsingu á námskeiðinu hér að neðan.
Námskeið í skartgripagerð
Lærðu að hanna og búa til skartgripi af einum mesta sérfræðingi heims!
Kenndar eru margar mismunandi aðferðir í skartgripagerð og í lok kvöldsins hanna allir sína eigin muni og búa þá til - okkar námskeið eru EKKI byggð þannig upp að allir búi til sama hlutinn, enda trúum við því að nemendur læri lítið sem ekki neitt af slíkum námskeiðum.
Í búðinni er svo landsins langmesta úrval af skartgripaperlum! Kíkið í búðina og lítið á efniviðinn.
Smellið hér til að sjá sýnishorn af munum sem hafa verið hannaðir og smíðaðir á námskeiðunum.
Námskeiðskostnaðurinn er 3.500 krónur á mann og greiðist fyrirfram. Innifalið í því er kennsla, afnot af tólum á meðan námskeiðinu stendur og veglegt kennsluefni á íslensku til eignar. Heilir hópar (6 aðilar eða fleiri) sem skrá sig saman fá námskeiðið á 3.150 krónur á mann.
Sendu okkur póst á perlukafarinn(hjá)perlukafarinn.is eða hringdu í síma 534-0255 til að fá nánari upplýsingar.
Vinnukvöld
Hittu aðra áhugasama skartgripasmiði til að vinna saman og skiptast á hugmyndum
Öðru hvoru bjóðum við áhugasömum viðskiptavinum upp á að eyða heilu kvöldi (18:15-21:00) með öðrum áhugasömum skartgripasmiðum þar sem hægt er að skiptast á hugmyndum, fá aðstoð frá sérfræðingi og nota tól og tæki Perlukafarans. Kvöldið kostar kr. 1.500 á mann og það þarf að láta vita um þátttöku með dags fyrirvara. Kvöldin eru tilkynnt með nokkurra daga fyrirvara á póstlista Perlukafarans.
Perluklúbbur
Ný námskeið í áskrift!
Haustið 2008 stofnuðum við perluklúbbinn "Perlufíkla" sem hittist eitt kvöld í mánuði og lærir nýja og spennandi hluti í hvert einasta skipti. Kvöldið er brotið upp með máltíð og stendur yfirleitt frá kl. 18:15 til 22:00. Hafið samband til að fá nánari upplýsingar.